Erlent

Fékk grein í höfuðið og vill rúman milljarð frá borgaryfirvöldum

Sasha Blair-Goldensohn ásamt dóttur sinni fyrir slysið.
Sasha Blair-Goldensohn ásamt dóttur sinni fyrir slysið.

Verkfræðingurinn, Sasha Blair-Goldensohn, krefst 120 milljón dollara, eða tæplega einn og hálfan milljarð, af New York borg eftir að trjágrein brotnaði af tréi og féll ofan á höfuðið á honum í Central Park. Sasha, sem starfar hjá leitarrisanum Google, hlaut alvarlega áverka og hefði geta látið lífið ef ekki væri fyrir tvo læknamenntaða skokkara sem gerðu að sárum hans á vettvangi.

Sasha höfuðkúpubrotnaði og hefur þurft að gangast undir allnokkrar aðgerðir. Þá hlaut hann heilaskemmdir auk þess sem hann er í hjólastól.

Sasha var á rölti að hlusta á iPodinn sinn þegar greinin, sem reyndist fúin, féll beint ofan á hann með fyrrgreindum afleiðingum.

Nú lögsækir hann borgina og vill meina að eftirlit með trénu hafi verið ófullnægjandi. Starfsfólk borgarinnar er skylt að yfirfara öll tré í Central Park, nærri göngustígnum, á tíu ára fresti. Því er ekki ólíklegt að Sasha hafi sigur í deilunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×