Enski boltinn

Drogba: Myndi aldrei freistast til þess að fara til City

Ómar Þorgeirsson skrifar
Didier Drogba.
Didier Drogba. Nordic photos/AFP

Framherjinn Didier Drogba hjá Chelsea telur að ríkidæmi Manchester City munu ekki nægja til þess að laða til sín bestu leikmenn heims en leikmenn á borð við Carlos Tevez, Emmanuel Adebayor og Gareth Barry gengu í raðir félagsins í sumar. Drogba segist ennfremur sjálfur ekki hafa neinn áhuga á að fara til félagsins.

„Ég myndi aldrei freistast til þess að fara til City og ég held að John Terry hafi heldur aldrei viljað fara þangað þrátt fyrir að mikið hafi verið gert úr því máli í sumar.

Ég held að bestu leikmenn heims séu það trygglyndir að þeir myndu ekki taka þátt í einhverju svona bara til þess að fá aðeins meiri pening í vasann," er haft eftir Drogba í viðtölum við breska fjölmiðla.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×