Erlent

Mannskæð sprenging á rússneskum skemmtistað

Mynd/AFP

Að minnsta kosti 76 eru látnir eftir að sprengja sprakk í næturklúbbi í rússnesku borginni Perm í kvöld. Rúmlega 200 manns voru á skemmtistaðnum þegar sprengjan sprakk. Meira en sextíu voru fluttir á sjúkrahús.

Yfirvöld telja að ekki hafa verið um hryðjuverk að ræða heldur megi rekja sprenginguna, og eldinn sem blossaði upp í kjölfarið, til bilaðs búnaðar á skemmtistaðnum. Að auki er talið að brunavarnir hafi verið ófullnægjandi.

Borgin Perm er tæplega 1400 kílómetra suðaustan af Moskvu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×