Erlent

Ákærður fyrir að myrða rúmlega eins árs stúlku

Millie Martin var 15 mánaða gömul þeggar hún var myrt.
Millie Martin var 15 mánaða gömul þeggar hún var myrt.

Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að myrða 15 mánaða gamla stúlku í Fermanagh-sýslu á Norður-Írlandi. Maðurinn er sakaður um að hafa gengið í skrokk á stúlkunni með þeim afleiðingum að hún bakbrotnaði. Millie lést svo á spítala í Belfast á föstudaginn eftir barsmíðarnar sem áttu sér stað degi áður.

Maðurinn verður leiddur fyrir rétt á morgun þar sem málið verður þingfest yfir honum.

Fjölskylda stúlkunnar gáfu út yfirlýsingu á föstudaginn þar sem þau sögðust vera dofinn af sársauka og haldin óbærilegum sársauka eftir andlát stúlkunnar sinnar.

Ekki er ljóst hvað manninum gekk til með fólskuverki sínu.

Það var BBC sem greindi frá málinu á vefsíðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×