Erlent

Medvedev: Rússneska þjóðin syrgir

Medvedev minnti á mikilvægi þess að fólk héldi ró sinni. Mynd/AP.
Medvedev minnti á mikilvægi þess að fólk héldi ró sinni. Mynd/AP.
Rússnesk yfirvöld telja að hryðjuverkamenn beri ábyrgð á því að 39 manns fórust og 90 særðust í lestarslysi í Rússlandi í gærkvöldi. Dimitry Medvedev, forseti Rússlands, flutti ávarp í dag vegna atburðanna, og minnti á mikilvægi þess að fólk héldi ró sinni. Hann sagði rússnesku þjóðina syrgja.

Um það bil 650 voru um borð í lestinni þegar sprengjan sprakk. Talið er að 39 séu látnir en um það bil 90 manns sem voru um borð dvelja á sjúkrahúsi, sumir alvarlega slasaðir.

Lestin var á leið frá Moskvu til Pétursborgar. Norðaustan við höfuðborgina fóru fjórir vagnar af sporinu. Vitni segja að áður en það gerðist hafi hár hvellur heyrst.

Rússneski fjölmiðillinn Interfax hafði í dag eftir talsmanni rússneska ríkissaksóknaraembættisins að ljóst sé að um hryðjuverk sé að ræða.




Tengdar fréttir

Aðskilnaðarsinnar taldir bera ábyrgð á slysinu

Grunur leikur á að aðskilnaðarsinnar frá Téténíu séu ábyrgir fyrir lestarslysinu í Rússlandi í gærkvöldi. Að minnsta kosti þrjátíu fórust í slysinu og um eitt hundrað slösuðust.

Mannskætt lestarslys í Rússlandi

Að minnsta kosti 30 manns fórust í lestarslysi í Rússlandi í gærkvöld, 60 eru slasaðir. Yfirvöld þar í landi hafa þegar hafið rannsókn á því hvort hryðjuverk hafi verið framið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×