Erlent

Tíu ára drengir ákærðir fyrir að nauðga átta ára stúlku

Breska lögreglan að störfum. Mynd úr safni.
Breska lögreglan að störfum. Mynd úr safni.

Tveir tíu ára drengir hafa verið ákærðir fyrir að nauðga átta ára gamalli stúlku í vestur-London í október á síðasta ári samkvæmt fréttavef The Daily Mail.

Þar kemur fram að nauðgunin hafi átt sér stað í almenningsgarði á síðasta ári og tilkynntu foreldrar stúlkunnar um afbrotið þegar hún skilaði sér heim og sagði að sér hefði verið nauðgað.

Sérstök rannsóknardeild innan Scotland Yard rannsakaði málið. Þar eru rannsóknarlögreglumenn sérhæfðir í rannsóknum á kynferðisofbeldi gagnvart börnum.

Drengirnir verða leiddir fyrir dómara á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×