Erlent

Heimili Jacksons tæmt

Óli Tynes skrifar

Jósef Jackson er sagður hafa áhyggjur af því að hlutum yrði stolið af heimili sonarins og því ákveðið að tæma það af verðmætum.

Yngri systir hans Janet eyddi þar einhverjum klukkustundum við að velja það sem átti að fara í stóra flutningabíla.

Fjölskyldan hefur nú fengið lík hans afhent og ætlar að láta gera sína eigin krufningu. Því er haldið leyndu hvar líkið er geymt.

Ekkert hefur verið látið uppi um hvenær útför Jacksons fer fram.

Búast má við talsverðri öryggisgæslu þegar hún verður gerð því milljónir manna bæði í Bandaríkjunum og erlendis vilja sjálfsagt mæta.

Fyrstu niðurstöður opinberrar krufningar leiddu banamein hans ekki í ljós. Hinsvegar voru tekin sýni sem verða rannsökuð frekar til þess að komast að því hvaða lyf hann tók áður en hann lést.

Læknir Jacksons hefur verið yfirheyrður en hann var viðstaddur þegar söngvarinn féll í dá, og gerði á honum lífgunartilraunir. Ekkert hefur verið látið uppi um vitnisburð læknisins.

Einn af heimilismönnum Jacksons hefur hinsvegar sagt að hálftíma áður en hann lést hafi hann fengið sprautu af sterku verkjalyfi með morfínsbasa.




Tengdar fréttir

Michael undir ómannlegu álagi - myndband

„Veistu ég var ekki hissa. Michael Jackson var undir ómannlegu álagi," segir Páll Óskar meðal annars þegar talið berst að fráfalli og ekki síður útlitsbreytingum Michael í gegnum tíðina.

Hönnuðu Michael Jackson bol í nótt

Bolabúðin Dogma á Laugavegi var ekki lengi að bregðast við tíðindum gærkvöldsins. Strax í nótt var farið í það að hanna Michael Jackson bol sem fór í prentun í morgun og í kjölfarið strax í sölu. Magnús Nílsson hjá Dogma segir að annar bolur sé á leiðinni og verði kominn í búðir seinnipartinn í dag. Á þeim bol er Jackson orðinn aðeins eldri og hvítari.

Neyðarlínusímtal Jacksons - upptaka

Slökkviliðið í Los Angeles sendi frá sér upptökuna af neyðarlínu símtali sem hringt var úr húsi Michael Jackson þegar hann missti meðvitund.

Madonna syrgir Michael Jackson

Madonna sendi frá sér tilkynningu vegna fráfalls Michael Jackson: „Ég get ekki hætt að gráta yfir þessum sorglegu tíðindum. Ég hef alltaf dáðst að Michael Jacson. Heimurinn hefur misst einn af þeim bestu en tónlist hans mun lifa að eilífu. Hjartað mitt er hjá þremur börnum hans og öðrum meðlimum fjölskyldu hans. Guð blessi hann," - Madonna.

Krufning á Jackson skilaði engu

Engar vísbendingar fundust um dánarorsök þegar Michael Jackson var krufinn í gær. Dánardómstjóri segir að frekari rannsóknir hafi verið fyrirskipaðar, meðal annars til þess að komast að því hvaða lyf poppstjarnan hafi tekið fyrir dauða sinn.

Hvatti Jackson til að snúa aftur í kirkju Votta Jehóva

Einn helsti andlegi ráðgjafi Michaels Jacksons segir að hann hafi verið blíður maður en hrelld sál. Óli Tynes ræddi við gyðingaprestinn Shmuley Boteachk og spurði hann meðal annars af hverju Jackson hafi reynt að verða hvítur.

Jackson krufinn aftur

Fjölskylda Michael Jacksons hefur fengið lík hans afhent og ætlar að láta gera sína eigin krufningu. Fyrstu niðurstöður opinberrar krufningar leiddu banamein hans ekki í ljós.

Lögreglan leitar læknis Michael Jackson's

Lögreglan í Los Angeles leitar nú að týndum lækni Michael Jackson's þar sem hún telur að hann geti gefið mikilvægar upplýsingar varðandi andlát söngvarans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×