Erlent

Hvatti Jackson til að snúa aftur í kirkju Votta Jehóva

Einn helsti andlegi ráðgjafi Michaels Jacksons segir að hann hafi verið blíður maður en hrelld sál. Óli Tynes ræddi við gyðingaprestinn Shmuley Boteachk og spurði hann meðal annars af hverju Jackson hafi reynt að verða hvítur.

Shmuley Boteach er einn þekktasti gyðingaprestur Bandaríkjanna, höfundur tuttugu metsölubóka og stjórnandi bæði útvarps og sjónvarpsþátta.

Hans eigin trú hafði ekkert með samband þeirra Jacksons að gera, þvert á móti hvatti hann söngvarann til þess að snúa aftur í kirkju Votta Jehóva enda Jackson mjög guðhræddur.

Samband þeirra Shmuels og Jacksons rofnaði árið 2003 þegar Shmuel fann að söngvarinn var að fjarlægjast hann og vildi frekar hlusta á áhangendur sína. Shmuel segist muni hugsa til Jacksons með ást söknuði og sektarkennd það sem hann eigi eftir ólifað.


Tengdar fréttir

Ellen Kristjáns: Mér fannst hann æðislegur

„Hann var bara einstakur skemmtikraftur af líf og sál en höndlaði ekki þennan frægðarsirkus," segir Ellen Kristjánsdóttir söngkona aðspurð um Michael Jackson. „Mér fannst hann æðislegur, sérstaklega þegar hann var ungur. Uppáhaldslagið mitt er I´ll be there. Elstu stelpurnar mínar og bræðrabörn fannst hann ótrúlega frábær og á tímabili Thrillers var sungið og dansað alla daga og plaköt um alla veggi." „Sorglegt hvernig fór fyrir Michael í lokin en minninginn lifir áfram um frábæran listamann," segir Ellen að lokum.

Hafdís Huld: Samsæriskenningar komnar á kreik

„Það eru allir fjölmiðlar hér fullir af fréttum að Michael Jackson, sérstakir þættir á öllum stöðvum með lögunum hans og allskonar samsæriskenningar strax komnar á kreik," svarar Hafdís Huld Þrastardóttir söngkona sem býr í London aðspurð um viðbrögðin við fráfalli Michael Jackson í Bretlandi. „Það er verið að líkja umræðunni í fjölmiðlum við það sem gerðist þegar Elvis og Marilyn Monroe fellu frá," bætir hún við og segir: „Sama hvað fólki fannst um það hvernig Michael lifði sínu persónulega lífi held ég að enginn geti neitað því að maðurinn var alger snillingur þegar kom að tónlist og sviðsframkomu . Lögin hans hafa elst einstaklega vel og það er eiginlega ótrúlegt að hugsa til þess þegar maður hlustar á til dæmis Thriller að þessar upptökur séu meira en 25 ára gamlar." „Uppáhalds Jackson platan mín hefur samt alltaf verið jólaplatan með Jackson five. Hún er spiluð heima hjá mér á hverjum jólum," segir Hafdís áður en kvatt er.

Krufning á Jackson skilaði engu

Engar vísbendingar fundust um dánarorsök þegar Michael Jackson var krufinn í gær. Dánardómstjóri segir að frekari rannsóknir hafi verið fyrirskipaðar, meðal annars til þess að komast að því hvaða lyf poppstjarnan hafi tekið fyrir dauða sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×