Erlent

Danska lögreglan handtók Íslending

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan hefur handtekið fleiri hundruð manns í mótmælunum. Mynd/ AFP.
Lögreglan hefur handtekið fleiri hundruð manns í mótmælunum. Mynd/ AFP.
Íslendingur er á meðal þeirra sem handteknir voru í Kaupmannahöfn um helgina vegna mótmælanna í kringum loftslagsráðstefnuna. Danmarks Radio hefur eftir lögreglunni að hinir handteknu séu alls af 26 þjóðernum.

Samkvæmt DR eru hinir handteknu frá Belgíu, Sviss, Tékklandi, Þýskalandi, Danmörku, Spáni, Kína, Frakklandi, Finnlandi, Bretlandi, Grænlandi, Ungverjalandi, Hvíta Rússlandi, Ítalíu, Írlandi, Íslandi, Litháen, Mongólíu, Noregi, Hollandi, Póllandi, Kína Svíþjóð, Tyrklandi og Bandaríkjunum.

Tæplega 1000 manns voru handteknir í gær en á þriðja hundrað í dag. Flestum er sleppt fljótlega eftir handtöku en þrír hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram í byrjun janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×