Erlent

Óeining í Köben

Frá loftslagsráðstefnunni í Köben.
Frá loftslagsráðstefnunni í Köben. Mynd/AP
Þjóðum heims gengur heldur illa að ná samkomulagi um hvernig eigi að deila niður þeim gríðarlega kostnaði sem fylgir því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Hann er talinn geta numið 150 milljörðum dollara á ári.

Það er ósamkomulag um allnokkura þætti á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn sem hófst á mánudag. Meðal annars er deilt um hversu djúpt einstök ríki eigi að fara í vasa sína til þess að mæta þeim gríðarlega kostnaði sem fylgir því hefur í för með sér þegar dregið verður úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Þegar fram í sækir er talið að kostnaðurinn geti verið 150 milljarðar dollara á ári.

Þróunarríkin vilja að ríku þjóðirnar beri sem mest af þeim kostnaði. Ríku löndunum er ekkert um það gefið.

Þá er ekki sátt um það hversu mikið eigi að draga úr útblæstrinum. Aftur á móti hafa Bretar og Frakkar tekið höndum saman um að reyna að fá þjóðir Evrópu til þess að að setja markið við 30% fyrir árið 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×