Erlent

Maður í hjólastól tók 5 menn í gíslingu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ekki er vitað hvaða gerðar hjólastóllinn var.
Ekki er vitað hvaða gerðar hjólastóllinn var.
Allt að fimm manns hafa verið teknir í gíslingu á pósthúsi á smábæ í Virginíufylki í Bandaríkjunum. Fjölmiðlar í bænum segja að meintur gíslatökumaður hafi verið í hjólastól og hann hafi sagst vera með sprengjuefni.

Bæjarstjóri í bænum sagði í samtali við Associated Press fréttastofuna að skotum hefði verið hleypt af úr byggingunni en ekki hefði verið tilkynnt um að neinn hafi særst.

AP segir að sérsveitarmenn úr lögreglunni og sprengjusérfræðingar séu á vettvangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×