Erlent

Telja að Tiger flytji til Svíþjóðar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tiger getur kannski slegið nokkur högg í Svíþjóð. Mynd/ AFP.
Tiger getur kannski slegið nokkur högg í Svíþjóð. Mynd/ AFP.
Líklegt er að atvinnukylfingurinn Tiger Woods og eiginkona hans muni flytja búferlum til Svíþjóðar að mati fjölmiðla vestur í Bandaríkjunum.

Associated Press fréttastofan greinir frá því í dag að eiginkona Woods, Elin Nordegren, hafi keypt hús á eyju, skammt frá Stokkhólmi þann 1. desember síðastliðinn.

AP segir að samningaviðræður um kaup á húsinu hafi hafist skömmu eftir að húsið var sett á markað í ágúst síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×