Erlent

Vinsældir Berlusconi aukast

Berlusconi var útskrifaður af sjúkrahúsi sl. fimmtudag. Læknar hafa fyrirskipað honum að hafa hægt um sig fram yfir jól. Mynd/AFP
Berlusconi var útskrifaður af sjúkrahúsi sl. fimmtudag. Læknar hafa fyrirskipað honum að hafa hægt um sig fram yfir jól. Mynd/AFP
Eftir að dregið hafði umtalvert úr vinsældum Silvios Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu undanfarið hálft ár aukast vinsældir hans nú á nýjan leik. Stuðningurinn er rakinn til þess að ráðist var á hann á sunnudaginn fyrir viku í Mílanó.

Dagbliðið Corriere della Sera lét gera könnun sem blaðið birti í dag. Þar kemur fram að 55,9% Ítala styðja Berlusconi en um miðjan nóvember mældist stuðningur við forsætisráðherrann 48,6%.

Fyrir árásina hafði Berlusconi kvartað undan því að hann væri orðinn fórnarlamb andrúmslofts haturs, en hann hefur undanfarið sætt harðri gagnrýni bæði vegna kynlífshneykslis og spillingarmála. Eftir árásina hafa fjölmargir Ítalir lýst yfir samúð með honum, en einnig hafa sumir hrósað árásarmanninum, sem nú situr í fangelsi í Mílanó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×