Erlent

Silvio Berlusconi: Ástin sigrar hatrið

Berlusconi fékk þungt högg í andlitið.
Berlusconi fékk þungt högg í andlitið.

Forsætisráðherrann umdeildi, Silvio Berlusconi, sendi stuðningsmönnum sínum skilaboð frá spítalanum þar sem hann dvelur en þar stóð meðal annars að ástin sigrar hatrið að lokum.

Skilaboðin voru birt á heimasíðu stuðningsmanna forsætisráðherrans en hann er nefbrotinn auk þess að tvær tennur brotnuðu í honum eftir að sálsjúkur maður kastaði styttu í andlit hans á sunndagskvöldið.

Berlusconi hefur dvalið á spítala síðan árásin átti sér stað og hefur neitað að tjá sig við fjölmiðla. Hann hefur undirgengist aðgerðir og má búast við að hann verði á spítala næstu dagana.

Meðal þess sem hann skrifaði í kveðju sína voru þakkir til stuðningsmanna sinna og þeirra sem höfðu sent honum heillaóskir. Hann áréttaði að fólk ætti að halda ró sinni, svo endaði hann skilaboðin á ljóðrænni línu um að ástin sigri ávallt hatrið að lokum.

Meðal þeirra sem hafa sent forsætisráðherranum heillaóskir eru Frakklandsforseti og sjálfur Páfinn.

Talið er að forsetinn muni halda sér til hlés í tvær vikur samkvæmt læknisráði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×