Erlent

Danska lögreglan fengið hátt í 900 innbrotstilkynningar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um miðjan dag í dag hafði danska lögreglan fengið 826 tilkynningar um innbrot á heimili og í atvinnuhúsnæði þar í landi yfir jólin. Búist er við því að talan eigi eftir að hækka eftir því sem fram líður og fólk snýr heim úr jólaferðum. Fjöldinn er þó svipaður og hann var í fyrra.

Í sumum lögregluumdæmum þykir afbrotum hins vegar hafa fækkað. Danska ríkisútvarpið segir að innbrot í Hróarskeldu séu færri nú en þau voru. Og í fyrra voru samtals gerð 120 innbrot á Fjóni þann 24. og 25. desember, en nú er talan einungis 92.

Ekki eitt einasta innbrot hafði verið framið í Bornholm um miðjan dag í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×