Erlent

Páfinn fullur hneykslunar

Benedikt 16. páfi.
Benedikt 16. páfi. Mynd/AP
Benedikt páfi gagnrýnir kaþólsku kirkjunni á Írland sem hélt hlífiskildi yfir níðingum. Hann segist vera fullur hneykslunar líkt og írskur almenningur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Páfagarður sendi frá sér í dag.

Kaþólska kirkjan á Írlandi gætti þess áratugum saman að ekkert fréttist opinberlega af framferði presta sem níddust á börnum. Kirkjan kaus að gæta orðspors síns frekar en að styðja fórnarlömbin. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar sem opinberuð var í lok nóvember. Undanfarin þrjú ár hefur nefndin grandskoðað leyniskjöl kirkjunnar um þessi mál.

Írska ríkisstjórn baðst í kjölfarið afsökunar á að ríkið hefði ekki dregið yfirvöld kaþólsku kirkjunnar til ábyrgðar.

Benedikt páfi hyggst skrifa forystumönnum kaþólsku kirkjunnar á Írlandi bréf um það hvernig hann vill að kirkjan bregðist við skýrslunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×