Erlent

48 látnir og þúsundir flýja flóð í Bólivíu

Hópur fólks fer yfir ánna Ichilo í  Poza Azul sem er 165 kílómetra norður af Santa Cruz.
Hópur fólks fer yfir ánna Ichilo í Poza Azul sem er 165 kílómetra norður af Santa Cruz. MYND/AFP

Að minnsta kosti 48 eru látnir og 40 þúsund hafa misst heimili sín í flóðum í Bólivíu í kjölfar hellirigninga síðustu vikna. Tvær ár í héruði sem verst varð úti í flóðunum flæddu yfir bakka sína og ógna nú samgönguæðum frá Trinidad, helstu borg héraðsins. Ríkisstjórnin hefur lýst yfir neyðarástandi og hafið björgunarstörf.

Frá því í nóvember hafa flóð herjað á nokkra hluta landsins og búist er við frekari rigningum. Á þessum tíma árs er rigningartími í Bólivíu, en embættismenn segja flóðin nú sérlega slæm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×