Innlent

Samfylkingin lætur ekki beita sig skoðanakúgun

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og starfandi utanríkisráðherra.
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og starfandi utanríkisráðherra. MYND/GVA

Össsur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og starfandi utanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag að Samfylkingin myndi ekki láta beita sig neinni skoðanakúgun.

Með því var Össur að svara Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstri - grænna, og Guðna Ágústssonar, formanni Framsóknarflokksins, sem gagnrýndu að Samfylkingin gerði Evrópusambandsaðild að umræðuefni við núverandi aðstæður.

Össur benti á að Íslendingar væru ekki þeirri stöðu sem þeir væru í nú ef þeir hefðu gengið í ESB og tekið upp evruna. Samfylkingin hefði lengi verið hlynnt ESB-aðild og flokkurinn hlyti að mega leggja sín viðhorf fram. Það vildi svo til að meirihluti þjóðarinnar væri á þessari skoðun, þar á meðal meirihluti stuðningsmanna Framsóknar og Vinstri - grænna.


Tengdar fréttir

Jóhanna: Endurskoða stjórnarsáttmála með tilliti til ESB

,,Við verðum öll að skoða aðild að Evrópusambandinu með opnum hug," sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í umræðum á Alþingi fyrir stundu. Reyna verði á aðildarviðræður þar sem þjóðin hefur úrslitavald um inngöngu.

Getur vel verið að mistök hafi verið gerð

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að vel geti verið að gerð hafi verið mistök á síðustu misserum en hann telji að íslensku bankarnari hefðu átt möguleika á að komast í gegnum erfiðleikana ef lausafjárkreppan hefði ekki skollið á af jafnmiklum þunga hér á landi og raun bar vitni. Hann sagði enn fremur að framferði Breta hefði verið tekið upp á vettvangi NATO af hálfu Íslendinga.

Björgvin boðar hispurslaust uppgjör

Björgvin G. Sigurðsson þakkaði landsmönnum fyrir vel unnið verk á síðustu dögum í ræðu sinni á Alþingi í dag. Hann sagði afrek hafa verið unnin þegar tókst að halda bankakerfinu gangandi þrátt fyrir efnahagshrunið. Á sama tíma hefðu landsmenn allir haldið stillingu sinni og sýnt æðruleysi frammi fyrir vandanum sem við er að etja. Hann segir mikilvægt að hispurslaust uppgjör fari fram.

Aðgerðir Breta mannréttindabrot af verstu sort

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir aðgerðir breskra stjórnvalda gegn íslenskum fyrirtækjum mannréttindabrot af verstu sótt og vill að breska ríkisstjórnin verði kærð hið fyrsta.

Ríkisstjórnin kannar grundvöll málshöfðunar á hendur Bretum

Ríkisstjórnin hefur falið breskri lögmannssstofu að kanna grundvöll málshöfðunar á hendur breskum stjórnvöldum vegna þeirra aðgerða sem þau gripu til í síðustu viku gegn íslenskum fyrirtækjum. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem flutti munnlega skýrslu um stöðu bankakerfisins.

Þorgerður vill læra af reynslu Finna

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra, vill að Íslendingar læri af reynslu Finna og fjárfesti í menntun til framtíðar. Þetta sagði hún við umræður um stöðu bankakerfisins á Alþingi í dag. Þorgerður benti á að Finnar hefðu líkt og Íslendingar lent í bankakreppu undir lok síðustu aldar og þá veðjað á menntunþ. Það hefðii borgað sig því vöxtur finnska hagkerfisins hefði verið mikill á síðustu árum þar sem hátækni hefði skipað æ meiri sess.

Spyr hvort von sé á meiru og þá hvaðan

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði í umræðum um skýrslu forsætisráðherra um stöðu bankakerfisins að fjölmörgum spurningum væri enn ósvarað.

Ríkissaksóknari rannsakar starfsemi bankanna

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur falið ríkissaksóknara að hafa forystu um að gera skýrslu um stöðu og starfsemi íslenskra peninga- og fjármálastofnana. Þetta kom fram í ræðu ráðherra á Alþingi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×