Aðgerðir Breta mannréttindabrot af verstu sort 15. október 2008 14:20 MYND/GVA
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir aðgerðir breskra stjórnvalda gegn íslenskum fyrirtækjum mannréttindabrot af verstu sótt og vill að breska ríkisstjórnin verði kærð hið fyrsta. Í umræðum um stöðuna í efnahagslífinu á Alþingi sagði Guðni að allt hefði farið á versta veg, bæði hér og fyrir utan landsteinana. Það mætti segja að það geisaði heimsstyrjöld um viðskipti. Enginn hefði sé þessa þróun fyrir þótt margir hefðu flutt varnaðarorð um heimskreppuna sem hefði hafist í Bandaríkjunum fyrir ári. Þeirra á meðal hefðu verið framsóknarmenn. Guðni sagði að þetta kallaði á uppgjör og til þess þyrfti virta endurskoðendur og lögfræðinga, flokkana á þingi og jafnvel erlenda aðila. Guðni gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki enn ákært bresk stjórnvöld fyrir þeirra framgöngu. Þau hefðu ráðist inn í Landsbankann og Kaupþing og hryðjuverkalög væru fáheyrð aðferð gegn lítilli vinaþjóð. Hinn siðmenntaði heimur hlyti að fordæma vinnubrögðin. Það hefði verið framið vopnað rán og banka rænt af þjóðinni en allt hefði bent til þess að Kaupþing myndi standa kreppuna af sér áður en bresk stjórnvöld gripu inn í. Kæra ætti breska heimsveldi til hæstu skaðabóta. Guðni sagðist trúa því að á rústum fjármálakreppunnar risi nýtt Ísland þar sem græðgi myndi víkja fyrir lögmálum viskunnar. Nú riði á að jafnræði gilti milli vinnubragða skilanefnda og einstaklingar og fyrirtæki nytu jafnræðis þegar skilanefndir bankanna væru að störfum. Úr eignum bankanna yrði að gera sem mest verðmæti, annars risi Ísland ekki til nýs hagvaxtar. Þá sagði Guðni að svar yrði að fást við því hvers vegna skýrslu breskra hagfræðinga um stöðu íslenska kerfisins, sem unnin hefði verið fyrir Landsbankann, hefði verið stungið ofan í skúffu. Spurði Guðni hvort ráðherrar og þingmenn hefðu lesið þessa skýrslu. Guðni sakaði enn fremur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar, um að hræra í blóði sjálfstæðismanna með umræðum um Evrópusambandið. Leiðin að myntsamstarfi yrði ekki á dagskrá í bráð. Íslendingar skyldu sitja einir að auð sínum. Þá sagði hann brýnt að fá fram þau skilyrði sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setti fyrir aðstoð við Ísland. Fagnaði hann stýrivaxtalækkun morgunsins og fór fram á frekari lækkun. Guðni sagði enn fremur að mannauðurinn hér á landi væri dýrmætastur. „Beitum oddinum fast og Ísand skal rísa og líta margan hamingjudag," sagði Guðni enn fremur í áeggjan til þjóðarinnar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira