Getur vel verið að mistök hafi verið gerð 15. október 2008 16:37 MYND/Vilhelm
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að vel geti verið að gerð hafi verið mistök á síðustu misserum en hann telji að íslensku bankarnari hefðu átt möguleika á að komast í gegnum erfiðleikana ef lausafjárkreppan hefði ekki skollið á af jafnmiklum þunga hér á landi og raun bar vitni. Hann sagði enn fremur að framferði Breta hefði verið tekið upp á vettvangi NATO af hálfu Íslendinga. Í lok umræðu um stöðu bankakerfisins á Alþingi í dag sagði Geir enn fremur að margt í verkum bankanna hefði verið glannalegt og hugsanlega hefði átt að gera ráðstafanir til þess að minnka bankakerfið. Hann teldi hins vegar að ef bankarnir hefðu fengið tíma til að vinna á vandanum hefði verið hægt að bjarga þeim. Nú segðu menn að ríkisstjórnin og Seðlabankinn hefðu gert mistök. Það gæti vel verið að gerð hefðu verið mistök en hann teldi að það hefði verið alveg sama til hvaða ráða menn hefðu gripið í lok september, bankarnir hefðu ekki getað fjármagnað sig. Sú hafi verið niðurstaðan eftir atburðina 15. september þegar bandaríski bankinn Lehman Brothers fór á hausinn. Geir sagði að verið væri að reisa við bankakerfi um allan heim með þvílíkum stuðningi frá stjórnvöldum. Þar gengju fremst í flokki forysturíki alþjóðakapítalismans, Bandaríkin og Bretland. Þau stæðu ekki frammi fyrir því að allt þeirra bankakerfi hefði verið komið að fótum fram þótt margir stórir og fornfrægir bankar hefðu lagt upp laupana. Hins vegar hefðu bankarnir þrír hér á landi verið langstærstur hluti okkar bankakerfis. Geir sagðist telja að sú leið sem stjórnvöld hefðu farið í síðustu viku hefði verið sú rétta við þessar aðstæður. Þá sagði hann það ófyrirgefanlegt af hálfu breskra stjórnvalda að hafa beitt hryðjverkalögum gegn íslensku fyrirtæki og óhugsandi að hans mati að slíkt hefði verið gert gagnvart stærri og voldugari þjóð. Íslendingar hefðu fylgt þessu máli eftir, meðal annars á vettangi NATO, en jafnframt yrði að eiga góð samskipti við Breta í framtíðinni.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira