Innlent

Ríkissaksóknari rannsakar starfsemi bankanna

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur falið ríkissaksóknara að hafa forystu um að gera skýrslu um stöðu og starfsemi íslenskra peninga- og fjármálastofnana. Þetta kom fram í ræðu ráðherra á Alþingi í dag.

Með skýrslunni á að afla staðreynda um starfsemi bankanna þriggja sem féllu í síðustu viku og tilfærslu eigna, einkum á síðustu mánuðum starfseminnar. Markmiðið er að kanna, hvort refsiverð háttsemi hafi átt sér stað sem gefi tilefni til lögreglurannsóknar. Skýrslan á að liggja fyrir eigi síðar en í árslok. Björn leggur til að Ríkissaksóknari njóti aðstoðar fulltrúa frá embætti skattrannsóknarstjóra, Fjármálaeftirliti og Ríkisendurskoðun.

Þá semur ráðuneyti Björns frumvarp að sérstakri löggjöf um að stofnað verði tímabundið rannsóknarembætti, sem taki við rannsókn á kærum um meinta refsiverða verknaði, sem sprottnir eru af eða tengjast falli bankanna.

 

Gert er ráð fyrir að ráðinn verði sérstakur forstöðumaður embættisins sem myndi starfa í nánu samstarfi við hverja þá opinbera stofnun, innan lands og utan, sem aðstoðað getur við að upplýsa málið. „Embættið starfaði undir forræði ríkissaksóknara, sem gæti ásamt forstöðumanni, ákvarðað, hvaða rannsóknarefni féllu til þess. Það mun að sjálfsögðu verða undir alþingi komið, hvernig lög um þetta efni verða í endanlegri mynd, en hitt er ljóst af minni hálfu, að réttarvörslukerfið getur ekki brugðist við auknu álagi vegna þessara atburða, án þess að gripið sé til sértækra aðgerða," sagði Björn.

Björn sagði enn fremur að við setningu laga um þetta efni væri eðlilegt að velta því fyrir sér hvort koma ætti á fót samráðs- og eftirlitsnefnd með fulltrúum allra þingflokka, sem hitti forstöðumann hins nýja embættis reglulega og gæti í þeim trúnaði, sem bæri að virða, fylgst með framvindu mála.

„Við núverandi aðstæður er nauðsynlegt að gera allt, sem skynsamlegt er, til að efla traust á þeim innviðum, sem eru meginstoðir réttarríkisins. Þá er afar mikilvægt að ekki sé hrapað að neinu eða gefa sér í anda nornaveiða, að lög hafi verið brotin. Ég heiti á samstöðu þingmanna um úrlausn hinna brýnu verkefna, sem við íslensku þjóðinni blasa á þessari örlagastundu," sagði Björn.




Tengdar fréttir

Jóhanna: Endurskoða stjórnarsáttmála með tilliti til ESB

,,Við verðum öll að skoða aðild að Evrópusambandinu með opnum hug," sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í umræðum á Alþingi fyrir stundu. Reyna verði á aðildarviðræður þar sem þjóðin hefur úrslitavald um inngöngu.

Björgvin boðar hispurslaust uppgjör

Björgvin G. Sigurðsson þakkaði landsmönnum fyrir vel unnið verk á síðustu dögum í ræðu sinni á Alþingi í dag. Hann sagði afrek hafa verið unnin þegar tókst að halda bankakerfinu gangandi þrátt fyrir efnahagshrunið. Á sama tíma hefðu landsmenn allir haldið stillingu sinni og sýnt æðruleysi frammi fyrir vandanum sem við er að etja. Hann segir mikilvægt að hispurslaust uppgjör fari fram.

Aðgerðir Breta mannréttindabrot af verstu sort

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir aðgerðir breskra stjórnvalda gegn íslenskum fyrirtækjum mannréttindabrot af verstu sótt og vill að breska ríkisstjórnin verði kærð hið fyrsta.

Ríkisstjórnin kannar grundvöll málshöfðunar á hendur Bretum

Ríkisstjórnin hefur falið breskri lögmannssstofu að kanna grundvöll málshöfðunar á hendur breskum stjórnvöldum vegna þeirra aðgerða sem þau gripu til í síðustu viku gegn íslenskum fyrirtækjum. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem flutti munnlega skýrslu um stöðu bankakerfisins.

Hverjir stungu umdeildri skýrslu ofan í skúffu?

Katrín Jakobsdóttir varaformaður Vinstri grænna spurði margra spurninga í snarpri ræðu sinni á Alþingi fyrir stundu. Katrín talaði meðal annars um skýrslu tveggja breskra hagfræðinga sem unnin var fyrir Landsbankann en var stungið ofan í skúffu þar sem hún þótti of viðkvæm.

Þorgerður vill læra af reynslu Finna

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra, vill að Íslendingar læri af reynslu Finna og fjárfesti í menntun til framtíðar. Þetta sagði hún við umræður um stöðu bankakerfisins á Alþingi í dag. Þorgerður benti á að Finnar hefðu líkt og Íslendingar lent í bankakreppu undir lok síðustu aldar og þá veðjað á menntunþ. Það hefðii borgað sig því vöxtur finnska hagkerfisins hefði verið mikill á síðustu árum þar sem hátækni hefði skipað æ meiri sess.

Spyr hvort von sé á meiru og þá hvaðan

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði í umræðum um skýrslu forsætisráðherra um stöðu bankakerfisins að fjölmörgum spurningum væri enn ósvarað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×