Ríkisstjórnin kannar grundvöll málshöfðunar á hendur Bretum 15. október 2008 14:12 Geir H. Haarde, forsætisráðherra.
Ríkisstjórnin hefur falið breskri lögmannssstofu að kanna grundvöll málshöfðunar á hendur breskum stjórnvöldum vegna þeirra aðgerða sem þau gripu til í síðustu viku gegn íslenskum fyrirtækjum. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem flutti munnlega skýrslu um stöðu bankakerfisins á Alþingi í dag. Geir sagði gríðarlega örlagaríka daga að baki og mikil áföll hafa dunið yfir en á svona stundum sýndu Íslendingar samstöðu. Við kynnum að bogna tímabundið en myndum ekki brotna. Þá sagði hann að Íslendingar myndu hægt og bítandi komast út úr versta storminum. Forsætisráðherra sagði ríkisstjórn og Seðlabankann leggja allt kapp á að gjaldeyrisviðskipti kæmust í lag og vísaði meðal annars til gjaldeyrisskiptasamninga við Norðurlönd sem virkjaðir voru í gær. Rætt væri við fleiri um lán, þar á meðal Rússa og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Allt sem gæti orðið að liði í þeim vanda sem við blasti yrði skoðað fordómalaust. Geir sagði útlit fyrir samdrátt í innlendri eftirspurn og því þyrfti örva efnahagslífið frekar en hitt. Því hefðu stýrirvextir verið lækkaðir en það lækkaði fjármagnskostnað heimila og fyrirtækja og kæmi hjólum efnahagslífsins af stað. Geir sagði að með opnun fyrir frjálst flæði fjármagns til Íslands hefðu lífskjör batnað mikið á síðustu árum. Hins vegar væri Ísland nú viðkvæmara fyrir atburðum á alþjóðlegum mörkuðum. Hin alþjóðlega lausafjárkreppa sem hefði hafist í fyrra hefði dýpkað verulega og haft áhrif á bankana. Útlit hefði verið fyrir að þeir gætu fjármagnað sig út árið en alkul á fjármagnsmarkaði í kjölfar falls Lehman Brothers hefði breytt því. Ríkisstjórnin gat ekki hlaupið undir bagga með bönkum Ríkisstjórnin hefði því tekið ákvörðun um að setja lög og slá þannig skjaldborg um innlendan hluta bankanna og sparifé almennings. Benti Geir á að tugir banka í heiminum hefðu játað sig sigraða og leitað á náðir stjórnvalda. Vandi ríkisstjórnar Íslands hefði verið sá hve íslenska bankakerfið var stór og því gæti ríkisvaldið ekki hlaupið undir bagga með þeim. Ef ríkisstjórnin hefði þjóðnýtt bankana hefði hún skuldbundið sig til þess að borga þúsundir milljarða af skuldum bankans. Sagði hann viðbrögð stjórnvalda einhver þau róttækustu sem gripið hefði verið til í sögunni. Geir sagði ríkisstjórnina þegar hafa gripið til ýmissa aðgerða til að koma í veg fyrir upplausn og örvæntingu. Hún hefði sett up starfshóp fjögurra ráðherra sem hefði yfirumsjón með aðgerðum í þeim erfiðleikum sem gengju yfir. Mikið starf hefði verið unnið í miðla upplýsingum til almennings og innlendra og erlendra fjölmiðla. Færði hann þeim sem unnið hefðu þrotlaust síðustu daga sínar bestu þakkir. Fordæmalausar aðgerðir Ráðherra sagði efnahagshamfarirnar í heiminum að líkindum þær versut í 90 ár. Nú hugsuðu þjóðir mest um að bjarga sjálfum sér og settu vinabönd til hliðar. Það væri í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að þjóðir vildu bjarga sjálfum sér en framkoma Breta í síðustu viku hefði ekkert átt skylt við það. Þeir hefðu beitt hryðjuverkalögum til að frysta eignir Landsbankans og þá hefðu bæði Gordon Brown og Alistair Darling farið með rangar upplýsingar í fjölmiðla. Enn fremur hefði breska fjármálaeftirlitinu verið beitt gegn Kaupþingi í Bretlandi sem varð til þess að bankinn fór á hliðina. Sagði Geir að þessar fordæmalausu aðgerðir gerðu það að verkum að íslensk stjórnvöld könnuðu grundvöll á skaðabótamáli og hefðu þau fengið breska lögmannsstofu til þess verks. Geir sagði stór verkefni bíða, þar á meðl uppgjör við fortíðina. Hann hygðist beita sér fyrir því að unnin yrði hvítbók um rannsóknir á starfsemi íslensku bankanna. Dómsmálaráðherra hefði umsjón með henni. Ef minnsti grunur léki á lögbrotum yrði brugðist við því. Breiður hópur kemur að nýrri sókn til framtíðar Geir sagði að þjóðin hefði orðið fyrir áfalli en þyrfti nú að horfa fram á við. Ekki þyrfti að byrja á því að byggja upp á nýtt þótt Íslendingar hefðu orðið fyrir höggi. Við værum rík af auðlindum og þá myndi með styrkari fiskistofnum gætum við hafið nýja sókn í sjávarútvegi. Menntun fólks myndi einnig veita okkur viðspyrnu í þeim verkefnum sem væru fram undan. Enn fremur sagði forsætisráðherra að Íslendingar hefðu spilað nauðvörn að undanförnu en myndu hægt og bítandi hefja sókn á ný. Mikilvægt væri að kalla breiðan hóp til þeirrar sóknar og jafnframt tryggja að almenningur gæti sagt sitt. Ríkisstjórnin hefði þegar ýtt þeirri vinnu úr vör og sagði Geir að góðar hugmyndir fengju stuðning. Ráðherra lauk orðum sínum á því að íslenska þjóðin hefði áður staðið frammi fyrir stórum og erfiðum verkefnum en þau hefðu styrkt hana. Enginn ætti að velkjast í vafa um það að íslenska þjóðin myndi safna vopnum sínum og láta til sín taka á ný.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira