Erlent

Andstæðingar hvalveiða verða handteknir í Japan

Andstæðingar hvalveiða verða handteknir ef þeir halda áfram að trufla japönsk hvalveiðiskip.

Fiskveiðiráð japans ásamt dómsmálaráðuneytinu tóku ákvörðunina eftir að fréttist af skipi á vegum Sea Schepard samtakanna sem ætlaði eingöngu að sigla frá Ástralíu til þess að trufla veiðar.

Meðlimir úr japanska flotanum munu fara yfir í skipið og flytja mótmælendur yfir í skip strandgæslunnar komi til þess. Hinir handteknu munu síðan verða ákærðir fyrir ásetning við að trufla viðskipti en réttað verður yfir þeim í japan.

Síðustu mótmæli meðlima Sea Shepard leiddu til þess að mótmælendur köstuðu flöskum með efnablöndu að flotanum til þess að trufla aðgerðirnar. Það leiddi til þess að nú er litið á þá sem „hryðjuverkamenn".

Tveir mótmælendur voru teknir um borð í japanskt hvalveiðiskip í janúar, og dvöldu þar í tvo tíma áður en þeir voru framseldir áströlsku strandgæslunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×