Mugabe sakar Botswana um að brugga sér launráð 15. desember 2008 14:05 Robert Mugabe.
Ráðamenn í Simbabve segja yfirvöld í nágrannaríkinu Botsvana leggja á ráðin um að steypa Robert Mugabe forseta landsins og þjálfi til þess herskáa stjórnarandstæðinga. Mugabe á undir högg að sækja vegna mannskæðs kólerufaraldurs í Simbabve sem nágrannar óttast að breiðist út. Um átta hundruð hafa látist af völdum kólerufaraldursins og mörg hundruð Simbabvebúar eru sýktir. Mugabe sagði fyrir helgi að búið væri að hefta útbreiðslu sjúkdómsins en leiðtogar nágrannaríkja og fulltrúar alþjóðlegra hjálparsamtaka efast um það. Talsmaður í ríkisstjórn Mugabe hefur sagt að Bretar og Bandaríkjamenn hafi beitt efnavopnum til að kalla fram kóleru. Þannig hefður þeir ástæðu til að grípa til vopna gegn ráðamönnum í Simbabve. Patrick Chinamasa, dómsmálaráðherra Simbabve, sagði síðan í viðtali við ríkisdagblað Herald í morgun að ríkisstjórnin hefði undir höndum gögn sem sönnuðu að Ian Khama, forseti Botsvana, hefði útvegað herskáum stjórnarandstæðingum í Simbabve herþjálfun. Khama ætlaði þannig að tryggja að Mugabe yrði steypt af stóli. Chinamasa sagði málið nú í rannsókn hjá Þróunarsamtökum ríkja í suðurhluta Afríku. Fulltrúar MDC, stærsta stjórnarandstöðuflokksins í Simbabve, hafa vísað þessu fullyrðingum á bug. Ráðamenn í Botsvana hafa enn ekki tjáð sig um málið. Mugabe og Morgan Tsvangirai, leiðtogi MDC, hafa síðan í haust reynt að mynda þjóðstjórn. Það hefur ekki tekist og málið í hnút. Samkvæmt samkomulagi frá í september átti Mugabe áfram að vera forseti og Tsvangirai að taka við sem forsætisráðherra en fyrst þurfti að skipa ráðherra í önnur embætti sem hefur gengið treglega. Talsmaður MDC segir nýjasta útspil liðsmanna í Zanu PF flokki Mugabes vera til að draga athyglina frá þrýstingi alþjóðasamfélagsins um að Mugabe segi af sér og um leið ætlað að gefa Mugabe ástæðu til að berja aftur á stjórnarandstæðingum.
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Erlent Fleiri fréttir Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Sjá meira