Erlent

Bush með magapínu

Gunnar Valþórsson skrifar
Bush reynir að slá á kveisuna með glasi af léttöli.
Bush reynir að slá á kveisuna með glasi af léttöli. MYND/AFP

Bush bandaríkjaforseti hefst nú við á hótelherbergi sínu í Heiligendam í Þýskalandi, þjáður af magakveisu. Búist er við því að hann snúi aftur til fundar við leiðtoga helstu iðnríkja heimsins seinna í dag.

Talsmaður forsetans sagði ekki ljóst hvað amaði að forsetanum að öðru leyti en því að honum er illt í maganum og að hann hafi ekki treyst sér á fundinn í morgun.

„Ég býst við því að hann hafi ekki viljað feta í fótspor föður síns," sagði blaðafulltrúinn léttur í bragði og vísaði í það þegar George bush eldri kastaði upp á fundi með japanska forsætisráðherranum á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×