Erlent

Milljarðar í baráttuna gegn alnæmi

Tónlistarmennirnir Bono og Bob Geldof eru í Heiligendam til þess að vekja athygli á málefnum Afríku.
Tónlistarmennirnir Bono og Bob Geldof eru í Heiligendam til þess að vekja athygli á málefnum Afríku. MYND/AFP

G8 fundurinn ákvað nú fyrir stundu að setja sextíu milljarða bandaríkjadala, um 3600 milljarða íslenskra króna, í baráttuna gegn alnæmi í Afríku. Gert er ráð fyrir að formlega verði tilkynnt um ákvörðunina seinna í dag.

Leiðtogar helstu iðnríkja heimsins munu beina sjónum sínum að málefnum Afríku á síðasta degi G8 ráðstefnunnar í Þýskalandi í dag. Þeir eru undir þrýstingi um að efna loforð um þróunaraðstoð sem gefin voru árið 2005 en ýmsar hjálparstofnanir hafa gagnrýnt ríkin fyrir að efna ekki þau loforð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×