Erlent

París laus - í bili

Vaxmyndasafn Madame Tussaud hefur fært París í viðeigandi klæðnað.
Vaxmyndasafn Madame Tussaud hefur fært París í viðeigandi klæðnað. MYND/AFP

Ungstirnið París Hilton gæti verið á leið í steinninn á ný. Henni var sleppt úr fangelsi í gær af ótilgreindum heilsufarsástæðum en saksóknarinn er ekki ánægður með þau úrslit og hyggst áfrýja.

Lausn Parísar hefur vakið hörð viðbrögð frá mannréttindasamtökum í Bandaríkjunum sem telja hana hafa fengið stjörnumeðferð í réttarkerfinu. Henni hefur verið gert að dúsa á heimili sínu í Hollywood í fjörutíu daga.

Heimildir herma að París hafi grátið nær stanslaust í þá þrjá daga sem hún þurfti að dúsa í steininum. Hún hafi þjáðst af svefnleysi og kulda í klefanum, enda hafi hún aðeins haft þrjú lítil teppi til að ylja sér, og engan kodda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×