Erlent

Fimmtán létust í bílsprengjum í Írak

Gunnar Valþórsson skrifar
MYND/AFP

Fimmtán féllu í tveimur bílsprengjum í suðurhluta írak í morgun. Sprengjurnar sprungu með skömmu millibili, sú fyrri í strætisvagni og sú seinni í bíl sem keyrt var inn á markaðstorg.

Báðar sprengjurnar sprungu í bænum Qurna sem lýtur stjórn shía múslíma. Yfirvöld kenna súnní múslimum um verknaðinn og saka þá um að hvetja til átaka á milli trúarhópanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×