Keane á enn í deilum við Íra 21. mars 2007 21:00 NordicPhotos/GettyImages
Roy Keane, stjóri Sunderland og fyrrum fyrirliði írska landsliðsins, er ekki hættur að deila á írska knattspyrnusambandið þó hann sé búinn að leggja skóna á hilluna. Keane átti í frægum deilum við landsliðsþjálfarann þegar hann spilaði með liðinu á sínum tíma og nú hefur hann gagnrýnt hreppapólitík hjá knattspyrnusambandinu í heimalandi sínu. Keane vill meina að leikmenn utan af landi njóti ekki náð fyrir augum forráðamanna landsliðsins á sama hátt og leikmenn frá höfuðborgarsvæðinu. Hann einnig að landsliðið í dag standi höllum fæti. "Það hjálpar Liam Miller sannarlega ekki að vera frá Cork," sagði Keane, sem sjálfur er þaðan. "Ég er viss um að hann væri í landsliðinu ef hann væri frá Dublin. Ég er ekki bara að tuða, þetta er svona og hefur verið svona síðan ég lék með landsliðinu. Þegar ég lék með unglingaliðinu á sínum tíma voru strákar í liðinu sem voru yngri og óreyndari - en komust í liðið af því þeir voru frá Dublin. Ég veit að Steve Staunton landsliðsþjálfari er ekki frá Dublin, en stjórn knattspyrnusambandsins er þaðan. Strákar frá Cork þurfa að leika miklu betur en félagar þeirra frá Dublin til að fá sæti í landsliðinu," sagði Keane og skaut í leiðinni föstum skotum að írska liðinu í dag - þar sem hann telur að sumir leikmenn haldi sæti sínu af gömlum vana. "Það er fín lína á milli þess að vera tryggur og vera heimskur. Það er allt í lagi að leyfa rótgrónum landsliðsmönnum að spila svo lengi sem þeir standa sig, en ef þeir fá að vera þarna af gömlum vana, er það orðið vandamál. Það eru engir írskir landsliðsmenn að grípa fyrirsagnir í knattspyrnuheiminum í augnablikinu og ég held að írska knattspyrnusambandið geti lært ýmislegt af rugby-liðinu. Ef þú hefur ekki trú á verkefninu - muntu ekki ná neinum árangri," sagði Keane.
Enski boltinn Mest lesið Hafþór Júlíus setti heimsmet í réttstöðulyftu Sport City að kaupa fyrrum leikmann sinn fyrir metfé Fótbolti Yfir þrjúþúsund manns á Meistaravöllum:„Albestu stuðningsmenn á Íslandi“ Fótbolti Landsliðsfólk fagnaði sigri í Kerlingarfjöllum Sport Sumardeildin hófst á stórsigri Fótbolti Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Körfubolti Halldór Árnason: „3-3 hefði verið nærri lagi“ Fótbolti Gerðu tvö jafntefli gegn C-deildarliðum á einum degi Fótbolti Uppgjörið: KR - Breiðablik 1-1 | Allt jafnt á nýja gervigrasinu Íslenski boltinn Kristófer sendir frá sér yfirlýsingu: „Ekki ætlun mín að valda usla“ Körfubolti Fleiri fréttir Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Gyökeres í flugvél á leið til London Sádarnir spenntir fyrir Antony Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Bað sjálfur um frí og vill fara frá Newcastle Úlfarnir kaupa kólumbíska Pelé Isak fer ekki í æfingaferðina Son eftirsóttur í LA og Tottenham tilbúið að selja en ekki strax Zubimendi fór ekki til Liverpool af því að hann vildi gæðaþjálfara Eiginkona Diogo Jota með vasaklútaskilaboð Liverpool staðfestir Ekitike og fljúga honum strax til Hong Kong Fyrsti bikar í húsi hjá Arsenal Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Sjá meira