Halldór Ásgrímsson sækir Eista heim 8. maí 2007 10:01 Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, er nú staddur í Eistlandi.
Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, er nú staddur í Eistlandi þar sem hann fundar með þeim Andrus Ansip, forsætisráðherra og Matti Maasikas ráuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu þar í landi. Heimsóknin er liður í því að leggja áherslu á mikilvægi áframhaldandi samstarfs milli Eystrasaltsríkjanna og Norðurlanda. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Halldór heimsækir Eistland en landið sótti hann oft heim á meðan hann gegndi þingmennsku og ráðherradómi. Hann hélt setningarræðu á nýsköpunarráðstefnu Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna sem bar yfirskriftina „Science, Technology and Entrepreneurship", en það er upplýsingaskrifstofa ráðherranefndarinnar í Eistlandi sem stendur fyrir ráðstefnunni í samstarfi við fjögur sendiráð aðildarlandanna. Halldór fjallaði í ræðu sinni um þær breytingar sem orðið hafa í samstarfi landanna. „Frá opnun upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Eistlandi árið 1991 hefur svæðið í heild sinni breyst mikið til batnaðar," sagði Halldór. Hann sagði að innganga Eystrasaltsríkjanna opnaði á mörg tækifæri en bætti því við að stækkunin hefði einnig í för með sér aukna samkeppni. Því væri mikilvægt fyrir Eystrasaltslöndin og Norðurlöndin að standa saman. „Þrátt fyrir 16 ára samstarf milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, eigum við enn langt í land. Til að láta drauma og framtíðarsýn okkar rætast er nauðsynlegt að vinna saman," sagði Halldór að lokum.
Mest lesið Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Innlent „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Innlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Erlent Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fleiri fréttir Baulað á Albanese á minningarathöfn á Böndi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Sjá meira