Íslenski boltinn

Geir: Eyjólfur klárar þessa keppni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Geir Þorsteinsson og Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari.
Geir Þorsteinsson og Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari. Mynd/E. Stefán

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari muni áfram stýra landsliðinu þar til samningi hans lýkur.

„Hans samningur gildir út þessa keppni og við erum nú að klára hana. Ég hef alltaf staðið fastur á því að Eyjólfur klárar þessa keppni og hef ég ekki skipt um skoðun í þeim efnum. Ég flýti mér hægt,“ sagði Geir í samtali við Vísi nú í kvöld.

„Við þurfum að setjast niður og fara yfir málin. Ég ætla ekkert að segja til um hvernig framtíðin verður vegna þess að ég veit það ekki. En það er ljóst að enginn er ánægður með árangurinn í kvöld.“

Geir segir að landsliðið hafi ekki spilað sem lið gegn Liechtenstein í kvöld, er Ísland tapaði, 3-0. „Ég var mjög ósáttur við að þeir skyldu ekki hafa skorað. Það er ljóst að enginn sættir sig við þetta, allra síst leikmennirnir sjálfir. Eins og leikirnir voru góðir í september voru leikirnir í þessum mánuði á sama hátt slæmir.“

Hann segir að það sé fleira sem þurfi að laga í landsliðinu en bara þjálfaramálin. Einnig hefur agaleysi oft borið á góma í umræðu um landsliðið undanfarið en Geir segir að vandinn verður ekki greindur í frösum.

„Þetta er eitthvað dýpra en það sem gerðist í kvöld.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×