Erlent

Sprenging í aukasposlum til starfsmanna

Skortur á vinnuafli í Danmörku hefur leitt til þess að sprenging hefur orðið í ýmsum aukasposlum fyrirtækja til starfsmanna sinna. Í umfjöllun blaðsins Berlingske Tidende um málið segir að hið nýjasta sé að starfsmenn fái stéttarfélagsgjöld sín greidd svo og matartíma sína.

Blaðið ræðir m.a. við René Nielsen formann fyrir Kaupmannahafnardeild Dansk Metal sem segir að atvinnurekendur eyði nú milljónum króna í ýmsar sposlur fyrir starfsmenn sína. Nefnir hann sem dæmi auknar sjúkratryggingar, kort í líkamsræktarstöðvar og breiðbandstengingar inn á heimilin.

Samhliða þessu hefur launaskrið í ár verið hærra en í fjölda ára og hafa laun starfsmanna innan Dansk Metal stigið um 4,55% að meðaltali það sem af er árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×