Leikmaður 6. umferðar: Emmanuel Adebayor 18. september 2007 09:48 Emmanuel Adebayor hefur slegið í gegn hjá Arsenal á tímabilinu. Nordic Photos / Getty Images
Framherjinn skæði hjá Arsenal, Emmanuel Adebayor, er leikmaður 6. umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Arsenal á Tottenham sem kom liðinu á topp deildarinnar. Síðan að Adebayor kom til félagsins frá Monaco í janúar í fyrra hafa margir haft sínar efasemdir að hann væri nægilega góður fyrir Arsenal. Sérstaklega hvort hann gæti komist nálægt því að fylla í það skarð sem Thierry Henry skildi eftir þegar hann fór til Barcelona. "Sumir höfðu símar efasemdir, það er rétt," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, um málið. "Hins vegar er það augljóst að það vantar heilmikið í liðið þegar hann er fjarverandi. Stundum olli hann vonbrigðum þar sem hann átti það til að misnota góð færi en á laugardaginn sýndi hann að hann getur skorað úr ótrúlegustu færum. Hann er til að mynda stöðugt ógnandi í loftinu." Adebayor ólst upp hjá Metz í Frakklandi en hann gekk til liðs við félagið árið 1999, þá fimmtán ára gamall. Hann skoraði 17 mörk í 35 leikjum fyrir félagið tímabilið 2003-4 og hefði getað farið til Arsenal eða Juventus þá. Hann kaus hins vegar að fara til Monaco þar sem hann öðlaðist dýrmæta reynslu í Meistaradeild Evrópu. Monaco komst vorið 2004 í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og skoraði Adebayor tvö mörk í tíu leikjum í Meistaradeildinni fyrir félagið það tímabilið. Hjá Arsenal sóttist hann eftir því að fá númerið 25 sem Kanu bar áður fyrr. Í viðtali við heimasíðu Arsenal sagði Adebayor að hann hafi dýrkað Kanu á sínum yngri árum og hefur hann meira að segja verið kallaður "Baby Kanu" af stuðningsmönnum Arsenal. Wenger hefur til að mynda sagt að Adebayor væri eins og Kanu en byggi yfir meiri hraða. Nafn: Emmanuel Adebayor Fæddur: Lomé á Tógó, 26. febrúar 1984 Félög: Metz, AS Monaco og Arsenal. Númer: 25
Mest lesið Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Körfubolti Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Körfubolti Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Golf Brynja og Svíinn fögnuðu eftir magnað kvöld í Sjallanum Sport Ótrúlegt flug undir stjórn Guðjóns og Haukur bjó til helming marka Löwen Handbolti Fór aftur holu í höggi á Masters og fær kristalsskál Golf „Þetta er högg í andlitið“ Enski boltinn Tindastóll - ÍR 125-87 | Fyrstir inn í undanúrslit Körfubolti Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin Íslenski boltinn Valur - Keflavík 79-78 | Sturluð sigurkarfa Kára Körfubolti Fleiri fréttir Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Sjá meira