Erlent

Bush vill herða efnahagsþvinganir gegn Súdan

Bush ásamt Mike Leavitt, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna.
Bush ásamt Mike Leavitt, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna. Mynd/ AFP
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að Bandaríkin myndu herða viðskiptaþvinganir á Súdan. „Allur heimurinn ber ábyrgð á því að enda þetta ferli og draga þá til ábyrgðar sem standa fyrir ofbeldinu. Bandaríkin hafa tekið forystu í því," sagði Bush í ræðu sem sýnd var í gegnum gervihnött á árlegri samkomu baptista í Suðurríkjum Bandaríkjanna. „Fjármálaráðuneytið er að herða viðskiptabannið gegn Súdan og við erum að leggja á ný höft, " sagði Bush ennfremur

 

 

Hann sagði jafnframt að Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ynni að því á vettvangi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að fá samþykkta áætlun sem byggi á því að beita Súdani frekar efnahagshindrunum og koma í veg fyrir að þeir fljúgi herflaugum yfir Darfur.

 

 

„Íbúar í Darfur grátbiðja um hjálp og hvorki baptistar í Suðurríkjunum, né Bandaríkin, munu bregðast þessu kalli, því við trúum því að málefni annarra ríkja komi okkur líka við, " sagði Bush.

 

 

Yfirlýsingin frá Bush kemur degi eftir að stjórnvöld í Súdan samþykktu að taka á móti sameiginlegu friðargæsluliði Afríkubandalagsins og Sameinuðu þjóðanna í Darfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×