Erlent

Fimm börn dóu í Pittsburgh

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Fimm börn, á aldrinum 3 - 7 ára létust þegar eldur kviknaði í þriggja hæða raðhúsi í Pittsburg í gærmorgun. Tveir átta ára drengir sluppu ómeiddir. Börnin dóu öll af völdum reykeitrunar. Þau voru stödd á annarri hæð hússins þegar eldurinn braust út. Húsið var alelda þegar slökkvilið mætti á staðinn og var litlu hægt að bjarga. Hugsanlegt er að upptök eldsins megi rekja til þess að börnin hafi verið að fikta með eldspýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×