Erlent

Napóleon í framboð

MYND/AP

Napóleon sækist eftir völdum í Frakklandi á ný. Sá Napóleon sem hér um ræðir, fjarskyldur frændi Napóleons Bónaparte Frakklandskeisara, ætlar hins vegar að ná völdum á lýðræðislegan hátt.

Charles Napóleon hefur boðið sig fram til setu á franska þinginu en þingkosningar verða haldnar nú í júní.

Engum sögum fer af einræðistilburðum hins nýja Napóleons, en eitt hefur hann þó fram yfir frænda sinn, hann er tveir metrar á hæð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×