Erlent

Tólf látnir eftir hvirfilbyl í Óman

Götur Múskat líktust stórfljótum í gær.
Götur Múskat líktust stórfljótum í gær. MYND/AP

Tólf hið minnsta eru látnir eftir að hvirfilbylurinn Gonu gekk yfir Óman í Miðausturlöndum. Bylurinn er sá öflugasti sem farið hefur um ríkin við Persaflóa í áratugi og hefur hann skemmt bæði byggingar og vegi í höfuðborg Óman, Múskat.

Enn fremur hefur verið rafmagns- og vatnslaust í borginni af völdum hvirfilbylsins og þurftu um 20 þúsund manns að flýja heimili sín. Gonu hefur einnig haft áhrif á efnahagslíf heimsins því olíuverð hefur hækkað vegna ótta við að bylurinn skelli á olíuvinnslutstöðvum við Persaflóa. Nokkuð hefur dregið úr styrk Gonus en hann stefnir nú að ströndum Írans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×