Erlent

Ekki samið um tiltekinn samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og makar þeirra heilsast í Heiligendamm í gær.
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og makar þeirra heilsast í Heiligendamm í gær. MYND/AP

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í morgun að líklegt væri að leiðtogar átta helstu iðnríkja heims næðu samkomulagi um að draga „áþreifanlega" úr losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum fyrir árið 2050 en engar ákveðnar tölur í því efni yrðu ákveðnar. Blair lét þessi orð falla eftir fund með George Bush Bandaríkjaforseta.

Leiðtogar ríkjanna funda nú í Heiligendamm í Þýskalandi þar sem eitt af helstu átakamálunum er baráttan við loftlagsbreytingar í heiminum. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, vill að iðnríkin sammælist um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um helming fyrir árið 2050 en Bandaríkjamenn segja fundinn ekki vettvang til þess að ræða slíkar hugmyndir.

Undir það tók Blair í morgun og benti á að bæði Indland og Kína þyftu að koma að slíkum samningi, en mikill uppgangur hefur verið í efnahagslífi þeirra landa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×