Erlent

Danskar kýr fái 150 daga útivist á ári

MYND/Getty Images

Dönsku dýraverndunarsamtökin gangast nú fyrir undirskriftasöfnun til að tryggja dönskum kúm að minnsta kosti 150 daga útivist á ári. 75 þúsund Danir hafa þegar skrifað undir kröfuna.

Hún er sett fram vegna þess að með tilkomu svonefndra verksmiðjufjósa er hætt að hleypa kúnum út á sumrin. Samtökin segja að þetta hafi skaðleg áhrif á heilsu þeirra auk þess sem danskur landbúnaður vilji hafa þá ímynd að mjólkurvörur komi úr hraustum útivistarkúm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×