Erlent

Segir sendiherra hafa fengið milljarða króna fyrir vopnasölusamning

Fyrrverandi sendiherra Sádi-Arabíu í Bandaríkjunum fékk yfir 14 milljarða króna í leynilegar greiðslur frá stærsta vopnaframleiðanda Bretlands fyrir að koma að vopnasölusamningi milli Breta og Sádi-Araba á níunda áratugnum.

Þetta er fullyrt í breska fréttaskýringarþættinum Panorama á BBC sem sýndur er á mánudag. Þar kemur enn fremur fram að greiðslurnar hafi verið með fullri vitund breska varnarmálaráðuneytisins.

Sendiherrann, Bandar bin Sultan prins, fékk fjármunina á yfir tíu ára tímabili eftir að vopnaframleiandinn, BAE Systems, hafði selt Sádi-Aröbum um 100 orrustuþotur árið 1985. Panorama greinir frá því að greiðslunar hafi verið hluti af viðaukum vopnasamningsins og að fjármunirnir hafi farið inn á tvo reikninga í Bandaríkjunum. Fjármunirnir hafi verið ætlaðir sádi-arabískum yfirvöldum en prinsinn hafi hins vegar notað fjármunina sjálfur, meðal annars til þess að greiða fyrir notkun Airbus-einkaþotu sinnar.

Rannsóknarnefnd í Bretlandi hafði komist að greiðslunum í fyrra en rannsókn hennar var hætt í fyrra á grundvelli þjóðaröryggis að sögn Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands. Haft er einum af talsmönnum Frjálslyndra demókrata á vef BBC að ef ráðherrar eða ríkisstjórnir hafi komið að málinu verði að hefja rannsókn á því á vegum breska þingsis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×