Erlent

Vatíkanið tekur sólarorku í sína þjónustu

MYND/AP

Vatíkanið hyggst leggja sitt af mörkum í baráttunni við loftlagsbreytingar með því að taka sólarorkuna í sína þjónustu til húshitunar og -kælingar. Eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC er þak einnar af byggingum Vatíkansins illa farið og því þarf að skipta um það.

Ætla Benedikt páfi sextándi og menn hans að nýta tækifærið og koma fyrir sólarrafhlöðum á byggingunni sem framleiða nógu mikið rafmagn fyrir ljós, ofna og viftur byggingarinnar.

Páfi hefur í ræðu hvatt kristna menn til að fara sparlega með auðlindir jarðarinnar og með þessu vill Vatíkanið ganga á undan með góðu fordæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×