Fundur átta helstu iðnríkjaheims hefst í dag 6. júní 2007 06:58 Búist er við fjölmennum mótmælum nærri Heiligendamm vegna fundar átta helstu iðnríkja heims en mótmælendur halda margir til í Reddelich þar sem þessi mynd var tekin MYND/AP
Búast má við að deilur Rússa og Bandaríkjamanna um eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu setji svip sinn á fund leiðtoga átta helstu iðnríkja heims sem hefst í Þýskalandi í dag. Evrópuríkin Þýskaland, Frakkland, Bretland, Ítalía og Rússland ásamt Japan, Bandaríkjunum og Kanada teljast til átta helstu iðnríkja heims en leiðtogar þeirra hittast árlega. Auk þess sitja áheyrnarfulltrúar þróunarríkja, Kína og nokkurra alþjóðastofnana fundinn sem fram fer í Heiligendamm í austurhluta Þýskalands. Meðal helstu mála sem rædd verða á fundi iðríkjanna eru loftlagsbreytingar en ríki Evrópusambandsins hafa þrýst á um nýjan alþjóðasamning um losun gróðurhúsalofttegunda sem getið leyst Kyoto-bókunina af hólmi. Því hafa Bandaríkjamenn verið andsnúnir en þeir hafa ekki enn staðfest Kyoto-samninginn. Þá er líklegt að framtíð Kosovo og staðan í Miðausturlöndum verði einnig rædd. Enn fremur er mjög líklegt að deilur vegna eldflaugavarnarkerfis Bandaríkjanna í Tékklandi og Póllandi setji svip sinn á fundinn. Valdímír Pútín, forseti Rússlands, lýsti yfir fyrr í vikunni andstöðu við þau áform og hótaði að beina kjarnorkuflaugum Rússa að Evrópu ef áformin gengju eftir. George Bush sagði í gær að Rússar þyrftu ekkert að óttast vegn kerfisins og að Bandaríkjamenn væru ekki andstæðingar Rússa. Leiðtogum Bretlands og Frakklands, þeim Tony Blair og Nicolas Sarkozy, er ekki skemmt vegna málsins og segjast ætla að eiga opinskáar viðræður við Pútín um hótanir hans. Blair sagðist enn fremur ætla að ræða við Pútín um morðið á Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnara hjá KGB, en Bretar hafa farið fram á að annar njósnari, Andrei Lugovoj, verði framseldur til Bretlands frá Rússlandi vegna morðsins. Því hafa Rússar hafnað. Leiðtogafundinum í Þýsklandi lýkur á morgun.
Mest lesið Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Innlent „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ Innlent Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Innlent Slitin drifkeðja bifhjóls olli banaslysi á Miklubraut Innlent Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Innlent Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Innlent Páll Winkel varð fyrir valinu Innlent Fleiri fréttir Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Sjá meira