Erlent

Síðari umferð forsetakjörs í Frakklandi hafin

Nicholas Sarkozy.
Nicholas Sarkozy. MYND/AP

Síðari umferð forsetakjörs í Frakklandi hófst í morgun. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan sex að íslenskum tíma. Síðustu skoðanakannanir sem birtar voru benda til þess að Nicholas Sarkozy verði hlutskarpari en keppinautur hans Segolene Royal.

Búist er við góðri kosningaþátttöku en síðustu tólf árin hefur Jacques Chirac gengt embættinu. Stöð 2 sýnir beint frá París í kvöldfréttatímanum, skömmu eftir að úrslitin verða ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×