Erlent

Útvarpsmaður rekinn fyrir að kalla körfuboltakonur hórur

Imus svarar fyrir ummælin í útvarpsþætti blökkumannaleiðtogans Al Sharpton
Imus svarar fyrir ummælin í útvarpsþætti blökkumannaleiðtogans Al Sharpton MYND/Getty Images

Vinsæll bandarískur útvarpsmaður, Don Imus var látinn taka pokann sinn hjá útvarpsstöð CBS í New York í dag. Brottrekstrarsökin voru ummæli Imus í þætti hans fyrir viku um körfuboltalið kvenna sem þóttu dónaleg og sýna virðingaleysi bæði gagnvart svörtu fólki og konum. Hann notaði orðalagið "nappy headed hos" sem gæti útlaggst: "krullhærðar hórur" um stúlkurnar í liðinu.

Fjölmargir leiðtogar blökkumanna, þar á meðal Barack Obama, forsetaframbjóðandi, svo og kvennahreyfingar og auglýsendur höfðu krafist þess að Imus yrði sagt upp vegna ummælanna. Hann hafði beðist afsökunar á ummælunum í fjölörgum viðtölum við fjölmiðla í vikunni. Það dugði ekki.

Imus hefur verið einn hæst launaði útvarpsmaður Bandaríkjanna um áratuga skeið. Árstekjur hans hafa numið nokkrum milljónum dollara. Útvarpsþætti hans á morgnana á WFAN, útvarpsstöð CBS í New York, var jafnframt sjónvarpað á fréttastöðinni MSNBC. MSNBC lét fyrst undan þrýstingi og hætti sýningu þáttarins í morgun. Yfirstjórn CBS fylgdi síðan í kjölfarið og tilkynnti Imus með símtali síðdegis að þáttur hans hefði verið lagður niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×