Erlent

Krefjast afsagnar menntamálaráðherrans

Danskir stjórnarandstæðingar krefjast afsagnar Brian Mikkelsen menntamálaráðherra vegna afskipta hans af ristjórnarstefnu Danska ríkisútvarpsins (DR). Bæði þingmenn Sósíalíska þjóðarflokksins og Jafnaðarmannaflokksins segja að ráðherranum sé ekki sætt. Þeir segja Mikkelsen hafa svikið þingið.

Meðal þeirra sem hafa látið hafa þetta eftir sér er formaður Sósíalíska þjóðarflokssins, Villy Søvndal og þingflokksformaður Jafnaðarmannaflokksins, Henrik Sass Larsen. Søvndal segir Mikkelsen hafa logið að þinginu í síðasta mánuði þegar hann sagðist ekki hafa rætt uppsagnir í útvarpinu við stjórn þess.

Christian S. Nissen fyrrverandi útvarpsstjóri sem var látinn víkja vegna framúrkeyrslu á kostnaði við nýja útvarpsmiðstöð hefur birt tölvupóst frá menntamálaráðherranum sem sannar annað og sýnir einnig fram á að ráðherrann reyndi að hafa áhrif á ritstjórnarstefnu DR.

Nú á að segja 300 starfsmönnum DR upp vegna niðurskurðar en hundruð starfsmanna lögðu niður störf í mótmælaskyni fyrr í vikunni vegna þessa.


Tengdar fréttir

Menntamálaráðherra í vanda vegna DR

Átökin um Danska ríkisútvarpið teygja nú anga sína inn í stjórnarráðið. Þá eru starfsmenn ósáttir við meinta óráðsíu í meðförum fjármuna útvarpsins. Það á að segja 300 starfsmönnum Danska ríkisútvarpsins upp en á sama tíma eru 120 stjórnendur útvarpsins á leið á námskeið í Sílíkondal í Kaliforníu og kostar það útvarpið samtals 3,6 milljónir danskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×