Menntamálaráðherra í vanda vegna DR 16. mars 2007 07:45 Ríkisstjórn Anders Fogh er í vanda AFP
Átökin um Danska ríkisútvarpið teygja nú anga sína inn í stjórnarráðið. Þá eru starfsmenn ósáttir við meinta óráðsíu í meðförum fjármuna útvarpsins. Það á að segja 300 starfsmönnum Danska ríkisútvarpsins upp en á sama tíma eru 120 stjórnendur útvarpsins á leið á námskeið í Sílíkondal í Kaliforníu og kostar það útvarpið samtals 3,6 milljónir danskra króna. Þessi staðreynd hefur vakið mikla reiði á meðal starfsmanna útvarpsins sem margir hverjir lögðu niður vinnu fyrr í vikunni til að mótmæla uppsögnunum. Þeir segja vart bætandi á 1,7 milljarða framúrkeyrslu á áætluðum kostnaði við nýja útvarpsmiðstöð á Amager. Þá hefur ríkisstjórn Anders Fogh Rassmussen þurft að standa af sér stormviðri síðustu daga en fram kemur í ævisögu fyrrverandi útvarpsstjóra DR, sem enn er óútkomin en birtir hafa verið kaflar úr, að ríkisstjórnin hafi ætlað að einkavæða útvarpið og hafi markvisst unnið að fylgi við þá stefnu. Danir hafa verið mjög samstíga um að ríkisreka útvarpið. Þá segir útvarpsstjórinn fyrrverandi líka að menntamálaráðherrann Brian Mikkelsen hafi gagngert reynt að hafa áhrif á ritstjórnarstefnu DR, aðallega í þeim tilgangi að fá jákvæðari umfjöllun um ríkisstjórnarflokkana. Útvarpsstjórinn segist sanna þetta með því að birta bréf frá ráðherranum. Menntamálaráðherrann Mikkelsen hefur vísað ásökunum útvarpsstjórans á bug og segist eingöngu hafa með bréfinu verið að tjá skoðanir sínar, enda hafi ráðherrar skoðana- og málfrelsi eins og aðrir.
Mest lesið Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Erlent Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Innlent Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Innlent Segir uppspuna að Mogginn sé að hætta að koma út á prenti Innlent Fleiri fréttir Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Sjá meira