Átta látnir í fellibylnum 20. ágúst 2007 03:00 Á myndinni sjást skemmdar götur á John Compton hraðbrautinni í Castries á St. Lucia eftir að fellibylurinn Dean fór yfir eyjuna á föstudaginn. Átta hafa látið lífið í fellibylnum. MYND/ap
Að minnsta kosti átta manns hafa látið lífið í fellibylnum Dean á yfirreið hans yfir nokkrar af eyjunum í austanverðu Karíbahafinu síðustu daga. Tjón af völdum fellibylsins er talið nema hundruðum milljónum dollara. Yfirvöld á Kúbu, Haítí, Dómíníkanska-lýðveldinu og fleiri eyjum í Karíbahafinu hafa flutt fleiri þúsundir manna frá ýmsum svæðum á eyjunum: fimmtíu þúsund manns voru til dæmis fluttir frá þremur héruðum á Kúbu. Tíu Íslendingar flúðu frá Cancún til Mexíkóborgar í gær. Fellibylurinn fór yfir Jamaíka í gærkvöldi á 230 kílómetra hraða á klukkustund. Forsætisráðherra landsins, Portia Simpson Miller, bað eyjarskeggja að vera ekki nærri ströndinni og leita skjóls í þeim þúsund neyðarskýlum sem hafa verið útbúin á eyjunni. „Þetta verður mjög, mjög alvarlegt," sagði Jamaíkabúinn, Lawrence Samuel, í gær þar sem hann keypti neyðarbirgðir í kjörbúð á eyjunni. Flugvöllum á Jamaíka var lokað síðdegis í gær. Fjölskyldur leita skjóls í skóla í Pedernales á Santó Dómingó í gær. Fréttablaðið/ap Fellibyljamiðstöðin í Miami segir að bylurinn muni ná fimmtu gráðu - fellibylir verða ekki kraftmeiri en það - áður en hann ríður yfir á Jukatánskaga í Mexíkó í kvöld eða á morgun. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Mexíkó. Flugvöllurinn í Cancún var fullur af ferðamönnum í gær sem vildu komast frá borginni. Eva Sólan, Íslendingur sem var staddur í Cancún í gær, sagði að uppbókað væri í allar flugvélar frá borginni. Líklegt þykir að fellibylurinn muni fara framhjá Cancún. Yfirvöld í landinu fluttu íbúa Mexíkó frá ströndum landsins sem liggja að Karíbahafinu. Íbúar í Texas í Bandaríkjunum byrjuðu auk þess að búa sig undir komu fellibylsins í gær og voru íbúar við landamæri Mexíkó hvattir til að yfirgefa heimili sín. Íbúar í New Orleans voru einnig byrjaðir að undirbúa brottför frá borginni, minningin um fellibylinn Katrínu er þeim sennilega enn í fersku minni. Vindhraði náði 123 kílómetra hraða á klukkustund í Oklahoma í gær. Talið er að fellibylurinn muni valda enn frekari skaða áður en yfir líður.
Mest lesið Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Erlent Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Innlent „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ Innlent „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Innlent Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Innlent Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal Innlent Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Innlent Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Erlent Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Erlent Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Erlent Fleiri fréttir Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Ozzy Osbourne allur Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Ísraelar segja yfirlýsingu 28 ríkja úr takti við raunveruleikann Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Nítján látnir eftir að herflugvél brotlenti á skólabyggingu Rússar opnir fyrir friðarviðræðum en hyggist ekki slá af kröfum sínum Hátt í sjötíu drepnir í biðröð eftir mat Ökumaðurinn skotinn af vitnum á vettvangi Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Ísrael og Sýrland hafi samið um vopnahlé Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Sjá meira