Erlent

Hreyfill Boeing vélar springur í loft upp

Engan sakaði þegar hreyfill Boeing 737-800 flugvél tævanska flugfélagsins China Airlines sprakk loft upp á flugvellinum á Okinawa í morgun. Alls voru 165 manns um borð í vélinni en hún var nýlent þegar atvikið átti sér stað.

Farþegar vélarinnar voru að ganga frá borði þegar hreyfillinn sprakk í loft upp. Vélin varð strax alelda og brotnaði í tvo hluta. Farþegarnir náðu að komast frá borði við illan leik og enginn þeirra slasaðist alvarlega. Einn starfsmaður flugvallarins slasaðist þó lítillega í sprengingunni.

Ekki er enn vitað hvað olli sprengingunni en samkvæmt talsmanni flugfélagsins China Airlines var vélin nýkomin úr reglubundinni skoðun. Talið er líklegt að eldsneytisleki hafi valdið sprengingunni en þá hafa yfirvöld á Okinawa ekki viljað útiloka að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða.

 

Há slysatíðni hjá China Airlines
Vélin brotnaði í tvo hluta við sprenginguna.

Þetta er í fjórða skiptið á síðastliðnum þrettán árum sem vélar flugfélagsins China Airlines lenda í alvarlegu óhappi. Árið 1994 létust tvö hundruð sextíu og fjórir þegar vél frá flugfélaginu hrapaði nálgæt borginni Nagoya í Japan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×