Erlent

Finnar vilja lækka skatta

„Efnahagsmálin ganga vel í Finnlandi og þá er stóra málið hvernig nota skal afganginn í ríkisfjármálunum. Á að lækka skatta? Á að bæta samfélagsþjónustuna? Allir vilja lækka skatta og allir lofa meiri þjónustu en spurningin er hvert hlutfallið á að vera," segir Björn Månsson, leiðarahöfundur Hufvudstadsbladet í Finnlandi.

Jan Sundberg, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Helsinki, segir að það fyrirkomulag að kjósendur merki við stjórnmálamann og greiði þannig flokknum atkvæði sitt geri það að verkum að kosningaumræðan er á mjög einstaklingsbundnum nótum.

„Þetta er fyrst og fremst spurning um hvort eigi að lækka skatta og þá hve mikið. Velferðarmál hafa eitthvað verið til umræðu og lífeyrismál en stóru málin eins og umhverfismál og innganga í Nató hafa ekkert verið á yfirborðinu en ef eitthvað gerist í Rússlandi þá kemur það örugglega til umræðu. Það er helst talað um tolla við landamærin en vöruflutningar fara mikið frá Rússlandi í gegnum finnskar hafnir," segir Jan.

Umræðan hefur fyrst og fremst snúist um skattalækkanir og þá hversu mikið eigi að lækka virðisaukaskatt á mat. Tekjuskatturinn lækkaði á kjörtímabilinu í Finnlandi og nú vilja flestir flokkar lækka vaskinn, bara mismikið.

Kosningabaráttan hefur verið róleg og tíðindalítil enda segja Jan og Björn engra stórra breytinga að vænta.

„Þeir sem eru óákveðnir geta haft afgerandi áhrif á það hverjir sitja í ríkisstjórn og hver verður forsætisráðherra," segir Björn og telur líklegast að Miðflokkurinn, jafnaðarmenn og Sænski þjóðarflokkurinn verði áfram við völd. Ef jafnaðarmenn tapa stórt þá sé líklegast að Miðflokkurinn, Hægriflokkurinn og Sænski þjóðarflokkurinn myndi ríkisstjórn.

Nokkur hneykslismál hafa komið upp í kosningabaráttunni. Í fyrsta skipti hefur mátt sjá neikvæðar sjónvarpsauglýsingar sem hafa lagst illa í kjósendur.

Þá hefur ástalíf Matta Vanhanen forsætisráðherra, sem þykir litlaus og leiðinlegur, verið milli tannanna á fólki en fyrrverandi vinkona hans hefur gefið út bók um samband þeirra.

Eiginmaður dómsmálaráðherrans hefur orðið uppvís að því að hafa borgað svart fyrir ráðherrann í síðustu kosningum. Talið er þó að þessum stjórnmálamönnum hafi tekist að snúa umfjölluninni sér í hag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×