Erlent

Dóp og kynlíf í Kattholti Emils

Svíar eru í sjokki. Meðan Svíar fagna því að barnabókahöfundurinn Astrid Lindgren hefði orðið tíræð sýnir norska sjónvarpið stuttmyndaseríu um Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren þar sem blandað er grófu kynlífi, áfengi og eiturlyfjum í þættina, að sögn sænskra og norskra blaða.

Ingegerd Sahlström, formaður Astrid Lindgren-samtakanna, er öskureið. „Ég get bara sagt að þetta er gróf móðgun við Astrid Lindgren. Að vera með kynlífsatriði og eiturlyf er langt frá þeim gildum sem Lindgren stóð fyrir,“ segir hún í sænska blaðinu Expressen og kveðst aldrei hafa vitað annað eins, um grófa misnotkun sé að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×